Myndir mánaðarsins, febrúar 2018 - Leigan
22 Myndir mánaðarins Litla vampíran Vampírur eru ekki til, rétt? Rangt! Íslensk talsetning: Hálfdán Helgi Matthíasson, Rúnar Freyr Gíslason, Hjálmar Hjálmarsson, Tinna Hrafnsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Vaka Vigfúsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Orri Huginn Ágústsson og Steinn Ármann Magnússon Leikstjórn: Tómas Freyr Hjaltason Útgefandi: Myndform 83 mín 15. febrúar Teiknimyndin um litlu vampíruna er byggð á víðfrægum og vinsælumbókumAngelu Sommer-Bodenburg semhún hóf að gefa út árið 1979. Sögurnar hafa í dag verið þýddar á yfir þrjá- tíu tungumál, þ. á m. íslensku, og selst í meira en 10 milljón eintökum auk þess að geta af sér bæði sjónvarps- og útvarps- þætti, leikrit, kennsluefni og leikna bíómynd árið 2000. Anton er þrettán ára gamall strákur sem er heillaður af sögum um hina dauðu og ódauðlegu og myndi gefa mikið fyrir að hitta eins og eina vampíru. Honum verður að ósk sinni þegar hann vingast við jafnaldra sinn Runólf, en hann er vampíra sem býr í gömlum kirkjugarði ásamt fjölskyldu sinni. Líf Antons breytist umsvifalaust í ævintýri en hætta steðjar að þegar hinn ógnvekjandi vampíru- bani Rokkfinnur mætir á svæðið, staðráðinn í að koma öllum vam- pírum fyrir kattarnef í eitt skipti fyrir öll. Það má ekki takast! Litla vampíran Teiknimynd DVD VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=