Myndir mánaðarsins, febrúar 2018 - Leigan

20 Myndir mánaðarins Blade Runner 2049 Hver er eftirlíking? Aðalhlutverk: Ryan Gosling, Harrison Ford, Jared Leto, Ana de Armas, Robin Wright, Dave Bautista, Edward James Olmos og Sylvia Hoeks Leikstjórn: Denis Villeneuve Útgefandi: Sena 163 mín Veistu svarið? Þegar Harrison Ford lék í Blade Runner (1982) á sínum tíma hafði hann m.a. leikið í fyrstu tveimur Star Wars - myndunum og í Raiders of the Lost Ark (1981). En fyrir leik í hvaða mynd árið 1985 hlaut hann svo sína fyrstu og einu Óskarsverðlaunatilnefningu hingað til? Witness. 15. febrúar l Handritið er skrifað af Michael Green og Hampton Fancher, en sá síðarnefndi skrifaði einnig handrit fyrri myndarinnar sem byggð var á bókinni Do Androids Dream of Electric Sheep? eftir Philip K. Dick og er ein þekktasta vísindaskáldsaga hans af mörgumgóðum. l Jared Leto leikur hinn ógnvekjandi Niander Wallace í Blade Runner 2049 en tæknin sem hann ræður yfir við gerð eftirlíkinga og hug- myndir hans um framtíðina gera hann að helstu ógninni sem að mannkyninu steðjar. Þess má geta að á netinu , t.d. á YouTube, er að finna sexmínútnamynd umNiander Wall- ace sem heitir Nexus Dawn og sýnir m.a. hvert hann er kominn í tækninni árið 2036, þ.e. þrettán árum áður en Blade Runner 2049 gerist. Einnig viljum við benda áhugasömumá roadto2049.bladerunnermovie.com þar sem það er útskýrt í heild hvað gerðist í Blade Runner -sögunni á milli áranna 2019 (gamla myndin) og 2049 (nýja myndin). Blade Runner 2049 er sjálfstætt framhald myndarinnar Blade Runner frá árinu 1982 og gerist 30 árum síðar þegar menn hafa fullkomnað þá tækni að framleiða nákvæmar eftirlík- ingar af fólki. Þessum eftirlíkingum er síðan ætlað það hlut- verk að sjá um hættulegustu störfin uns líftími þeirra er á enda. En hvað gerist ef eftirlíking fær sjálfstæðan lífsvilja? Blade Runner , þ.e. myndin sem Ridley Scott sendi frá sér árið 1982 og er af mörgum talin ein besta vísindaskáldsaga allra tíma, gerðist árið 2019 þegar menn höfðu fundið upp tækni til að framleiða eftirlíkingar af fólki semsíðan voru notaðar semþrælar á fjarlægum plánetum uns takmörkuðum og fyrirfram gefnum líftíma þeirra lauk. Stundum gerðist það að eftirlíking slapp og þá kom til kasta manna eins og Ricks Deckhart að ná þeim, en hann var einn af sérsveitarmönnunum í lögreglunni sem kölluðust„blade runners“. Í nýju myndinni leikur Ryan Gosling einnig blade runner, Officer K, sem kemst á snoðir um dularfullt mál úr fortíðinni. Til að aðstoða sig við rannsóknina þarf hann að hafa uppi á Rick sem hafði horfið þrjátíu árum fyrr, þ.e. eftir að hafa leyst sitt síðasta verkefni. Leit K ber árangur að lokum, en með ófyrirsjáanlegum afleiðingum ... Ryan Gosling leikur Officer K sem starfar við að elta uppi og fanga eða tortíma eftirlíkingum af fólki sem hafa sloppið frá eigendum sínum og jafnvel öðlast sjálfstæðan vilja langt umfram það sem þeim er ætlað. Blade Runner 2049 Til að hjálpa sér að komast til botns í málinu ákveður Officer K að hafa uppi á Rick Deckard sem farið hefur huldu höfði í þrjátíu ár. Punktar .................................................... HHHHH -Washington Post HHHHH - Chicago Sun-Times HHHHH - Variety HHHHH - Empire HHHHH - Guardian HHHHH - Total Film HHHHH - IGN HHHHH - Telegraph HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH 1/2 - Entertainm. Weekly HHHH - L.A. Times HHHH - Time Out HHHH - TheWrap Spenna / Hasar / Vísindaskáldsaga DVD VOD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=