Myndir mánaðarins- Janúar 2018 - Bíó
32 Myndir mánaðarins The Post Landráð eða almannahagsmunir? Aðalhlutverk: Meryl Streep, Tom Hanks, Sarah Paulson, Tracy Letts, Bob Odenkirk, Bradley Whitford, Bruce Greenwood, Matthew Rhys og Alison Brie Leikstjórn: Steven Spielberg Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Ísafjarðarbíó, Selfossbíó, Eyjabíó, Bíóhöllin Akranesi, Króksbíó og Skjaldborgarbíó 116 mín A.I. Artificial Intelligence. Frumsýnd 19. janúar l Kay Graham, sem Meryl Streep leikur í The Post , fór einnig fyrir eigendahópi The Washington Post þremur árum eftir atburði þessarar myndar þegar þeir Bob Woodward og Carl Bernstein komust á snoðir umþaumál sem leiddu tilWatergate-hneykslisins. The Post er nýjasta mynd Stevens Spielberg og um leið fyrsta myndin sem stórleikararnir Tom Hanks og Meryl Streep leika saman í en hún er nú tilnefnd til sex Golden Globe-verðlauna, þ.e. fyrir leik þeirra beggja í aðalhlutverkumkarla og kvenna, fyrir leikstjórn, handrit og tónlist, og sem besta mynd ársins. The Post gerist árið 1971 en á fyrri hluta þess árs komust blaðamenn dagblaðsins The Washington Post yfir ríkistrúnaðarskjöl sem síðan hafa verið kölluð „The Pentagon Papers“. Gögnin innihéldu m.a. viðamiklar upplýsingar um afskipti Bandaríkjastjórnar af innan- ríkismálum Víetnam allt frá árinu 1945 og átti þessi gagnaleki eftir að valda gríðarlegum skjálfta í æðsta stjórnkerfi Bandaríkjanna. Í gang fór mikil barátta, annars vegar ritstjórnar blaðsins sem taldi sig hafa rétt á að birta þessar upplýsingar vegna hagsmuna almennings og prentfrelsisákvæða og hins vegar ríkisstjórnar Nixons og lögfræðingateymis hennar sem hótaði því fullum fetum að ákæra þá fyrir landráð sem birtu upplýsingar úr skjölunum. Slík ákæra, hefðu dómarar tekið undir réttmæti hennar, hefði ekki bara gert út af við blaðið heldur komið bæði ritstjórum, blaðamönnum og eigendum þess í margra ára fangelsi, jafnvel til áratuga. Hvaða ákvörðun áttu eigendur blaðsins og ritstjórn að taka í málinu? Það ríkti að vonummikil spenna á meðal starfsfólks TheWashington Post á meðan á storminum stóð, en á meðal leikara sem þarna sjást eru þau Tom Hanks, Meryl Streep, Philip Casnoff, David Cross, Tracy Letts, Bradley Whitford, Jessie Mueller og Carrie Coon. Tom Hanks leikur ritstjórann Ben Bradlee sem fékk um nóg að hugsa sumarið 1971, enda hótaði ríkisstjórn Bandaríkjanna að ákæra hann og starfslið hans fyrir landráð ef blað þeirra birti trúnaðarupplýsingarnar. The Post Meryl Streep leikur Kay Graham sem fór fyrir eigendahópi blaðsins. Sannsögulegt Punktar .................................................... Veistu svarið? Þótt The Post sé fyrstamyndin eftir Steven Spielberg sem Meryl Streep birtist í hafa þau unnið saman áður því Meryl ljáði tölvunni „The Blue Fairy“ rödd sína í frægri vísindaskáldsögu sem Steven sendi frá sér árið 2001. Hvaða mynd er um að ræða?
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=