Myndir mánaðarins - Desember 2017 - Bíó

10 Myndir mánaðarins Bíófréttir – Væntanlegt í janúar Þetta eru þau Michelle Williams og Mark Wahlberg í einu atriði nýjustu myndar Ridleys Scott, All the Money in the World , sem verður almennt frumsýnd í janúar en í Bandaríkjunum fyrir áramótin svo hún geti verið með í keppninni um Óskarinn 2018. Myndin er byggð á bók Johns Pearson um eitt frægasta mannránsmál sögunnar þegar John Paul Getty III, sonarsyni ríkasta manns heims á þeim tíma, Jeans Paul Getty, var rænt aðfaranótt 10. júlí 1973 á Ítalíu. Fljótlega kom í ljós að mannræningjarnir kröfðust 17 milljón dollara í lausnargjald ella yrði John, sem var 16 ára, tekinn af lífi. Málið vakti alveg gríðarlega athygli á sínum tíma og töldu margir að John III hefði sjálfur sett mannránið á svið til að kúga fé út úr fjölskyldunni og þá sérstaklega hinum auðuga afa sínum sem var sá eini í henni sem átti í raun 17 milljón dollara. Sá neitaði hins vegar að borga á þeim forsendum að hann ætti 16 barnabörn og ef hann greiddi myndi þeim öllum verða rænt fyrr eða síðar með sömu afleiðingum. Málið var því í pattstöðu í nokkra daga, allt þar til afskorið eyra Johns III barst í pósti. Við kynnum þessa mynd betur í næsta blaði en bendum áhugasömum að kíkja á stikluna, en hún er alveg frábær. Gamanmyndin Father Figures verður frum- sýnd fyrstu helgina á nýja árinu 2018 en hún hringir áreiðanlega bjöllum hjá mörgum lesendum blaðsins enda höfum við skrifað um hana áður þar sem upphaflega stóð til að frumsýna hana fyrir ári síðan og var heiti hennar þá Bastards . Af ástæðum sem okkur eru ekki kunnar var þó ákveðið að fresta frumsýningu hennar fram á haustið 2017 og síðan aftur til 5. janúar 2018 og hlaut myndin þá um leið hið nýja heiti. Father Figures segir tvíburunumKyle og Peter sem eru í brúðkaupi móður sinnar þegar hún ljóstrar því upp að hún hafi alla tíð logið því að þeim að faðir þeirra væri dáinn. Í raun hafi hún ekki hugmynd um hver hann var og að hann gæti þess vegna enn verið á lífi. Þeim Kyle og Peter bregður mikið við þessar fréttir og í þeirra huga kemur ekkert annað til greina en að halda í leiðangur og finna pabba sinn. Með gamla ljósmynd af móður þeirra í farteskinu og óljósa staðsetningu hennar þegar þeir komu undir leggja þeir í hann en komast brátt að því að leitin reynist mun flóknari en þeir voru að vona enda virðist móðir þeirra hafa þekkt marga og víða komið við. Með hlutverk bræðranna fara þeir Owen Wilson og Ed Helms en í öðrum stórum hlut- verkum eru þau Glenn Close sem leikur móður þeirra, Christopher Walken, Ving Rhames, J.K. Simmons, June Squibb, Katie Aselton, Katt Williams, Ryan Cartwright og fyrrverandi íþróttastjarnan í bandaríska fótboltanum, Terry Bradshaw, sem leikur sjálfan sig. Þess má geta að gerð var ný stikla úr myndinni og er áhugasömum bent á að kíkja á hana enda er hún mjög skemmtileg og gefur góða von um gott grín og góða mynd. Orðrómurinn um að Gary Oldman muni hljóta Óskars- verðlaunin á næsta ári fyrir túlkun sína áWinston Churchill í myndinni The Darkest Hour hefur verið ákaflega sterkur á síðustu mánuðum og víst er að mörgum þykir tími kominn til að þessi frábæri leikari, sem á 35 ára leikafmæli á þessu ári, hljóti loksins þessi eftirsóttu verðlaun. Ljóst er þó að við ramman reip er að draga enda er Gary auðvitað ekki sá eini sem þótt hefur skara svo fram úr á árinu að hann eigi skilið Óskarsverðlaunatilnefningu. Það má þó telja nokkuð öruggt að hann verði tilnefndur og yrði það þá í annað sinn sem það gerist en hann var tilnefndur árið 2012 fyrir leik sinn í myndinni Tinker Tailor Soldier Spy . Það ár kom Óskarinn hins vegar í hlut hins franska Jeans Dujardin fyrir leik hans í myndinni The Artist sem einnig hlaut Óskarinn sem besta mynd ársins. Þess má geta að þeir níu leikarar sem þykja líklegastir til að keppa við Gary um tilnefningu til Óskars á næsta ári eru þegar þetta er skrifað, 26. nóvember, þeir Daniel Day-Lewis fyrir myndina Phantom Thread , James Franco fyrir The Disaster Artist , Tom Hanks fyrir The Post , Andrew Garfield fyrir myndina Breathe , Jake Gyllenhaal fyrir Stronger , Steve Carell fyrir Last Flag Flying , Timothée Chalamet fyrir Call Me By Your Name , Christian Bale fyrir Hostiles og Hugh Jackman fyrir The Greatest Showman . The Darkest Hour verður frumsýnd á Íslandi 19. janúar. Atriði úr The Darkest Hour þar sem Gary Oldman leikur breska forsætisráðherrannWinston Churchill.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=