Myndir mánaðarins, nóvember, 2019 - VOD

28 Myndir mánaðarins Þann 2. mars árið 2003 birti blaðið The Observer grein þar sem sýnt var fram á aðþjóðaröryggisstofnumBandaríkjanna, NSA, hefði skipulagt ólöglegar hleranir í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna til að afla fylgis við innrásina í Írak. Þetta er saga Katharine Gun, uppljóstrarans sem kom þessum upplýsingum til blaðsins. Eftir að hafa afplánað eins árs fang- elsisdóm fyrir eiturlyfjasmygl þarf hin 23 ára gamla Rose-Lynn Harlan að finna fjölina sína á ný, þ. á m. gagnvart tveimur börnum sínum sem hún þurfti að skilja eftir í umsjá móður sinnar. Toppmynd sem hefur hlotið frábæra dóma og flestir hafa mjög gaman af. Þegar bilun í geimskutlu ógnar lífi geimfaranna í henni fær NASA Charles Xavier til að setja saman björgunarteymi úr hópi X-manna. Aðgerðin heppnast með þeirri undantekningu að Jean Grey verður fyrir sólareldingu sem hefði átt að ganga af henni dauðri en kallar þess í stað fram í henni hina illu Dark Phoenix. Spider-Man: Into the Spider-Verse er stór- skemmtilegt hliðarævintýri frá hinum venjulegu Spider-Man -myndum þar sem aðalsöguhetjan Miles Morales telur sig hinn eina og sanna köngulóarmann – en hefur auðvitað rangt fyrir sér. Myndin hlaut Óskarsverðlaunin sem besta teikni- mynd ársins 2018. Hin sígilda saga dr. Seuss um ótuktina Trölla sem ákvað að stela jólunum frá íbúum Hver-bæjar kemur í ferskum og mjög fyndnum búningi teiknimynda- fyrirtækisins Illumination sem gerði m.a. Aulinn ég -myndirnar, myndirnar vinsælu um litlu gulu Skósveinana, Syngdu og Leynilífgæludýra . Rex er einn af hundum Elísabetar Englandsdrottningar og nýtur þeirra forréttinda að búa í Buckinghamhöll. Dag einn kemur Donald Trump forseti Bandaríkjanna í heimsókn ásamt eigin- konu sinni, Melaniu, og tíkinni Mitzi sem fær þegar augastað á Rex. Þar með setur hún í gang mjög óvænta atburðarás ... Eftir að hinummáttugaThanosi tókst það ætlunarverk sitt að þurrka út helming mannkyns á Jörðu með einum fingrasmelli og krafti eilífðarsteinanna er þeim sem eftir lifa af Avenger-hópnum vandiáhöndum.Getaþausnúiðgjörðum Thanosar við og endurheimt allar þær ofurhetjur sem hann eyddi? Harry Goodman er einkaspæjari í borg- inni Ryme þar semmannfólkið og póké- monar búa saman, að mestu í sátt og samlyndi. Þegar Harry hverfur dag einn sporlaust af skrifstofu sinni kemur það í hlut tvítugs sonar hans, Tims, ásamt fyrrverandifélagaHarrys,pókémonspæj- aranum Pikachu, að leysa málið Eftir að hafa séð hvers megnug andsetna dúkkan Annabelle er ákveða Warren- hjónin Ed og Lorraine að fara með hana heim til sín, loka hana inni í glerskáp sem hefur verið blessaður af presti og koma honum fyrir í rammgerðri geymslu í kjallara húss síns. En Annabelle lætur engan loka sig af til frambúðar. Skólafélagarnir og vinkonurnar Amy og Molly eru fyrirmyndarnemendur og hafa með mikilli elju uppskorið góðar einkunnir sem duga til að komast í bestu framhaldsskólana. En árangurinn hefur kostað þær miklar fórnir á félagslega sviðinu og nú er kominn tími til að bæta úr því í eitt skipti fyrir öll! Þriðja myndin um leigumorðingjann John Wick, sem í lok myndar númer tvö neyddist til að leggja á flótta þegar ljóst varð að nánast hver og einn einasti leigumorðingi í heimi myndi innan klukkustundar hefja leit að honum til að drepa hann og innheimta verðlaunafé fyrir vikið. Hér sjáum við hvað gerist svo! Rómantísk og ljúf ástarsaga um New York-búana Natöshu og Daniel (Yara Shahidi og Charles Melton) sem fella hugi saman svo að segja strax eftir að þau hittast.Yfir sambandi þeirra hvílir þó sá skuggi að þar sem fjölskylda Natöshu kom ólöglega til Bandaríkjanna stendur til að vísa henni úr landi. Þegar öllum íbúum bæjarfélagsins Coral Lake er skipað að yfirgefa bæinn þar sem fellibylur af allra stærstu gerð er við það að ganga yfir svæðið með tilheyrandi flóðum uppgötvar Haley Keller að faðir hennar, Dave, svarar ekki kalli. Þvert á ráðleggingar heldur hún því inn í bæinn, staðráðin í að finna föður sinn. Ljótubrúðurnar búa í Ljótabæ þar sem þær una ágætlega við sitt. Það á eftir að breytast dálítið þegar nokkrar þeirra leggja land undir fót og uppgötva að hinum megin við stóra fjallið þeirra er annar bær, Fullkomnibær, þar sem allar brúðurnar eru fullkomnar en ekki ljótar eins og þær sjálfar. Godzilla: King of the Monsters er óbeint framhald myndarinnar Godzilla sem kom út árið 2014 og naut mikilla vinsælda. Hér heldur ævintýrið áfram og í þetta sinn þarf Godzilla m.a. að takast á við hið þríhöfða skrímsli Ghidorah sem ætlar sér alheimsyfirráð, en í þeim átökum má mannfólkið síns frekar lítils – eða hvað? Ævintýrið um Aladdín, sem sótt er í uppfærðu útgáfuna af arabísku þjóðsög- unum Þúsundogeinnótt og Disney gerði frábæra teiknimynd eftir árið 1992, er hér fært ínýjan, litríkanogspennandibúning þar sem tónlist og dans kemur mikið við sögu og grínið og fjörið er að sjálfsögðu aldrei langt undan. Tvær konur sem hafa sérhæft sig í alls kyns svikum og prettum taka höndum saman um að svindla hressilega á for- ríkum mönnum og fá þá til að gefa sér hluta af auðæfum sínum. Allt gengur upp eins og í sögu þar til tækni- frömuðurinn og milljarðamæringurinn Thomas kemur til sögunnar. Í þessari þriðju og síðustu mynd um ævintýri víkingastráksins Hiksta og drekans hans, Tannlausa, lenda þeir í sínu mesta ævintýri til þessa þegar þeir þurfa að takast á við hinn illa drekabana Grimmel sem hefur einsett sér að ná Tannlausa á sitt vald. Það má honum að sjálfsögðu ekki takast! Þegar Rachel, sem er fyrrverandi njósnari ísraelsku leyniþjónustunnar, hverfur sporlaust í London hefst rannsókn á afdrifum hennar enda óttast yfirmenn ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad að hún búi enn yfir vitneskju sem í óvina- höndum gæti reynst Ísrael stórhættuleg. Ævintýri Ævintýri Ofurhetjur Teiknimynd Teiknimynd Teiknimynd Gamanmynd Sannsögulegt Fjölskyldumynd Drama/tónlist Teiknimynd Ofurhetjur Tryllir Gamanmynd Spennudrama Rómantík Hrollvekja Teiknimynd Hasar Aladdin X-Men: Dark Phoenix Godzilla: King of the Monsters Hundur hennar hátignar The Hustle The Grinch Pokémon Detective Pikachu Wild Rose UglyDolls Spider-Man: Into the Spi... Avenges: Endgame Crawl Að temja drekann sinn 3 Annabelle Comes Home Booksmart JohnWick: Chapter 3 Parab... The Sun is Also a Star The Operative Official Secrets Elton John þarf engrar kynningar við enda hefur hann trónað á toppnum í popptónlistinni allar götur frá því hann sló fyrst í gegn árið 1970 með lagi sínu Your Song. En tónlistarsaga hans nær mun lengra aftur í tímann en það og í þessari mynd leikstjórans Dexters Fletcher er farið yfir feril hans frá byrjun. Hundurinn Max og öll gæludýrin sem hann þekkir fara sem fyrr á kostum í Leynilífi gæludýra 2 , en hún er frá Illumin- ationsemgerðim.a. Aulinnég -myndirnar. Sem fyrr skyggnumst við hér á bak við tjöldin í lífi gæludýra og fáum að sjá enn betur en síðast hvað þau taka sér fyrir hendur þegar eigendurnir sjá ekki til. Teiknimynd Sannsögulegt Rocketman Leynilíf gæludýra 2 Hefurðu séð þessar?

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=