Myndir mánaðarins, janúar 2018 - Bíó

33 Myndir mánaðarins Mary Queen of Scots Baráttan um völdin Aðalhlutverk: Saoirse Ronan, Margot Robbie, Jack Lowden, Joe Alwyn, David Tennant, Guy Pearce, Gemma Chan, Martin Compston, Ismael Cruz Córdova og Ian Hart Leikstjórn: Josie Rourke Bíó: Laugarásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri 124 mín Frumsýnd 25. janúar l Þótt bókin sem myndin byggist á þyki vandað verk deila sagn- fræðingar um hvort þær María Stúart og Elísabet 1 hafi í raun og veru hist augliti til auglits. Engin áþreifanleg gögn eða heimildir eru til um slíkan fund en um það og fleiri sagnfræðileg álitaefni sem varða trúverðugleika sögunnar má að sjálfsögðu lesa á netinu. Mary Queen of Scots eftir leikstjórann Josie Rourke verður frumsýnd 25. janúar en í henni leika gæðaleikkonurnar Saoirse Ronan og Margot Robbie þær Maríu Stúart Skotadrottningu annars vegar og hins vegar Elísabetu 1. Englandsdrottningu, en þær háðu afdrifaríka baráttu um völdin yfir Bretlandseyjum ummiðja sextándu öld. Myndin er byggð á bókinni Queen of Scots: The True Life of Mary Stuart eftir John Guy sem komút árið 2004 og lýsti eins og titilinn ber með sér fyrst og fremst lífi Maríu Stúart sem var fædd árið 1542 og var réttborin drottning Skota. Hún ólst þó að mestu upp í Frakklandi þar sem hún giftist aðeins sextán ára að aldri verðandi konungi Frakka, Francis II, sem tók nokkrum mánuðum síðar við konungdóminum og lést svo nokkrum mánuðum eftir það. Átján ára að aldri var María því bæði orðin ekkja og drottning Frakklands auk þess að vera eins og áður segir réttborin drottning Skota. Á þessum tíma gerðu bæði Frakkar og Englendingar tilkall til yfirráða í Skotlandi og lögðu Frakkar hart að Maríu að taka undir kröfur þeirra. Það vildi hún hins vegar ekki gera og ákvað að fara frekar til Skotlands og taka þar við völdum sem drottning Skota. Hún giftist aftur en varð ekkja skömmu síðar í annað sinn þegar eiginmaður hennar var myrtur. Í hönd fóru róstusamir tímar þar sem einkalíf Maríu var á milli tannanna á fólki eftir að hún giftist í þriðja sinn enda töldu margir að hún hefði sjálf ákveðið að láta myrða eiginmann sinn til að geta gifst morðingjanum. Og þegar María ákvað síðan að gera tilkall til ensku krúnunnar hófst mögnuð barátta milli hennar og frænku hennar, Elísabetar 1. Englandsdrottningar. Saoirse Ronan leikur Maríu Stúart Skotadrottningu sem aðeins rúm- lega tvítug að aldri var orðin tvöföld ekkja og drottning tveggja landa. Mary Queen of Scots Drama Punktar .................................................... I, Tonya. Veistu svarið? Þetta er í fyrsta sinn sem þær Saoirse Ronan og Margot Robbie leika hvor á móti annarri en þær voru báðar tilnefndar til Óskarsverðlauna í fyrra fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna, Saoirse fyrir leik sinn í Lady Bird og Margot fyrir leik í myndinni ...? Margot Robbie leikur Elísabetu 1. Englandsdrottningu sem var síður en svo tilbúin til að afsala sér völdum til Maríu Stúart.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=