Myndir mánaðarins, nóvember 2018 - Leigan

43 Myndir mánaðarins Tölvuleikir Spyro Trilogy Reignited Tegund: Ævintýraleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 7+ Útgáfudagur: 13. nóvember Framleiðandi: Activision Útgefandi: Sena Spyro er mættur aftur brennandi heitur að vanda. Pakkinn inniheldur 3 Spyro -leiki, en hver þeirra er einstakt ævintýri þar sem drekinn Spyro kveikir í stemmingunni. Leikirnir hafa verið teknir í gegn og bjóða upp á betri grafík, betri spilun og allt aukaefni sem til er fyrir þá. Þetta er pakki sem Spyro - aðdáendur mega ekki láta fram hjá sér fara. Knowledge is Power: Decades Tegund: Spurningaleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 3+ Útgáfudagur: 14. nóvember Framleiðandi: Sony Inter- active Entertainment Europe Útgefandi: Sena Hver verður fyrstur að klífa þekkingarpýramídann? Hver veit mest um síðustu fjóra áratugi og hver verður fljótastur að svara? Í þessum nýja PlayLink-leik frá Sony fá leikmenn tækifæri til að svara þúsundum skemmtilegra spurninga um allt milli himins og jarðar. Leiknum er stýrt með snjallsímum eða spjaldtölvum leikmanna.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=