Myndir mánaðarins, september 2018

35 Myndir mánaðarins Tölvuleikir Tegund: Hasarleikur Kemur út á: PC, PS4 og Xbox One PEGI aldurstakmark: 18+ Útgáfudagur: 14. september Framleiðandi: Square-Enixfifa Útgefandi: Sena Hér fá leikmenn tækifæri til að upplifa þá stund þegar Lara Croft verður sú ævintýramanneskja sem henni var ætíð ætlað að vera. Í Shadow of the Tomb Raider þarf Lara að sigrast á stórhættulegu skóglendi, komast lifandi út úr hræðilegum grafhýsum og fara í gegnum sínar dimmustu persónulegu stundir. Markmiðið er að bjarga heiminum frá heimsenda sem Maya-ættbálkurinn hefur spáð að sé yfirvofandi! Shadow of the Tomb Raider Nýjungar: l Leikmenn þurfa að draga fram lífið á einum hættulegasta stað jarðarinnar, stað sem sam- anstendur af skóglendi þar semhættur leynast við hvert fótmál og neðansjávarsvæðum sem eru uppfull af hellum og hættusvæðum. l Leikmenn þurfa að nota umhverfi leiksins til að sigrast á óvinum, fela sig í trjámog grasi, bera á sig drullu til að dyljast og setja upp gildrur. l Grafhýsi leiksins eru ógnvænlegri en nokkru sinni fyrr og þurfa leikmenn að taka á öllu sínu til að lifa þau af, enda innihalda þau lífshættu- legar þrautir auk annarra ógna.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=