Myndir Mánaðarins, júlí 2018- Bíó

4 Myndir mánaðarins MYNDIR MÁNAÐARINS 294. tbl. júlí 2018 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / myndmark@islandia.is Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 20.000 eintök Jæja ... Finndu þá hvolpinn og taktu þátt í leiknum! Vinningshafar í síðasta leik, finndu ugluna: Fannar Þórir Samúelsson, Blikahólum 10, 111 Reykjavík Mikael Guðbrandsson, Birtingakvísl 34, 110 Reykjavík Erna Dögg Brynjarsdóttir, Sandprýði 3, 210 Garðabæ Hólmfríður S. Traustadóttir, Þrastarhöfða 21, 270 Mosfellsbæ María Hrönn Valberg, Hæðarbyggð 12, 210 Garðabæ Takk fyrir þátttökuna! Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulítinn hvolp sem gleymdi sér inni á einni síðunni hér bíó- megin í blaðinu og lítur út eins og þessi: Ef þú finnur hvolpinn og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum , þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem hvolpurinn er. Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu. Frestur til þátttöku er til og með 21. júlí . Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur út í lok júlí. Ekki fór það nú svo að við Íslendingar yrðum heimsmeistarar í fótbolta í ár en eins og alltaf í öllum tilvikum þá kemur dagur eftir þennan dag og nú er bara að setja stefnuna á næsta mót. Það jákvæða er að landsliðið stóð sig samt afar vel, vann riðilinn í undankeppninni, skoraði í sínum fyrsta leik fyrsta mark Íslands í lokakeppni heimsmeistaramóts, vann fyrrverandi heimsmeistara Argentínu 1-1 og hefði bara þurft að laða að sér eins og tvær til þrjár lukkudísir í viðbót til að komast upp úr riðlinum og í sextán liða úrslitin. En þetta kemur allt alveg áreiðanlega næst. Bíódagskrá kvikmyndahúsanna í júlí inniheldur að þessu sinni óvenju fáar myndir, eða þær sjö sem sjá má nöfnin á hér fyrir neðan og eru svo að venju kynntar nánar aftar í blaðinu: Og eins og alltaf hvetjum við lesendur til að kíkja einnig á DVD- og VOD-útgáfuna sem finna má hinum megin í blaðinu auk kynningar á einum nýjum tölvuleik og endurkynningar á öðrum. - Góða skemmtun! 1. júlí Ant-Man and the Wasp Bls. 18 4. júlí Ævintýraferð fakírsins sem festist inni í IKEA-skáp Bls. 20 11. júlí Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Bls. 21 11. júlí Skyscraper Bls. 22 18. júlí Mamma Mia! Here We Go Again Bls. 24 18. júlí The Equalizer 2 Bls. 26 18. júlí Hereditary Bls. 28 Myndir mánaðarins TM ...verðlaunin fyrir besta bíónammið fær Litríkt bíónammi

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=