Myndir mánaðarins, apríl 2018 - Bíó

4 Myndir mánaðarins Gleðilega páska Finndu þá páskaungann og taktu þátt í leiknum! Vinningshafar í síðasta leik, finndu sólina: Ásta Kristín Jónatansdóttir, Miðvangi 106, 220 Hafnarfirði Kristinn Þórisson, Hjallalundi 17i, 600 Akureyri Anna S. Gunnarsdóttir, Marargrund 11, 210 Garðabæ Guðni Sigurðsson, Sóleyjagötu 12, 300 Akranesi Karen Bergljót Knútsdóttir, Ljósheimum 6 íb. 802, 104 Reykjavík Takk fyrir þátttökuna! Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulítinn páskaunga sem villst hefur inn á eina síðuna hérna bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi: Ef þú finnur ungann og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum , þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem unginn er. Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu. Frestur til þátttöku er til og með 21. apríl . Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt á Facebook-síðunni okkar og í næsta tölublaði sem kemur út í lok apríl. Apríl er mættur í öllu sínu veldi og ber með sér páskahátíðina og allt sem henni fylgir, þar á meðal páskafrí fyrir marga sem við mælum að sjálfsögðu með að allir noti til að sjá góðar myndir. Svo óvenjulega vill til að páskadagurinn lendir í þetta sinn á gabb- deginum mikla, 1. apríl, en það hefur ekki gerst síðan 1956 og á vafalaust eftir að kveikja í mörgum húmoristanum. Á bíódagskrá mánaðarins eru tíu myndir að þessu sinni sem koma úr öllum flokkum kvikmyndalitrófsins eins og sjá má þegar listinn hér fyrir neðan er skoðaður og blaðinu flett áfram. Sjáumst í bíó! Ps. Kíkið svo endilega á DVD- og VOD-útgáfuna sem kynnt er hinum megin í blaðinu ásamt tveimur nýjum tölvuleikjum. 6. apríl A Quiet Place Bls. 16 6. apríl Blockers Bls. 18 6. apríl Death of Stalin Bls. 20 13. apríl Rampage Bls. 22 13. apríl The Strangers: Prey at Night Bls. 24 18. apríl 7 Days in Entebbe Bls. 25 18. apríl Önd, önd, gæs Bls. 26 18. apríl Every Day Bls. 28 27. apríl Super Troopers 2 Bls. 29 27. apríl Avengers: Infinity War Bls. 30 Bíódagskráin í apríl: Myndir mánaðarins FRUMSÝND 18. APRÍL MEÐ ÍSLENSKU TALI MYNDIR MÁNAÐARINS 291. tbl. apríl 2018 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / myndmark@islandia.is Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 21.000 eintök

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=